...hmmm

miðvikudagur, september 19, 2007

Nú er ég stolt móðir!
Óðinn var í trommutíma númer 2 í dag, og þegar ég kom að sækja hann kom trommukennarinn fram og sagði við mig frekar hissa á svipinn: hann er alveg skuggalega góður ...pikkar allt upp um leið!

...svo á hún Helga tengdamamma mín á afmæli í dag, og ég er líka voða stolt af henni! Það er bara verst að ég geti ekki verið fyrir norðan og slett í svosem eins og eina köku fyrir hana. Við Óðinn hugsuðum að minnsta kosti til hennar þegar við vorum að baka pönnukökurnar í kaffitímanum áðan, hún hefði í það minnsta átt skilið að fá þær :D

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Óðinn er alveg frábær, ég hlakka til að sjá hann og heyra á trommunum. Og takk fyrir góðar hugsanir og blómin : )

5:28 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home