...hmmm

fimmtudagur, nóvember 16, 2006

Án gríns ...það er ekki hægt að vera pæja í svona veðri. Ég held að það sé alveg málið að vera í lopapeysu, lopasokkum og með hettu ...undir sæng að lesa klíníska sálfræði. Svo ef maður þarf að skreppa út er um að gera að troða sér í úlpuna utanyfir þetta alltsaman og vefja um sig stórum trefli ...það er líka svona "extremely bad-hairday" hjá öllum held ég, á svona dögum. Ég var einmitt með hann Óðinn minn í klippingu í dag og hann var í miklum vandræðum. Það var ógeðslega kalt, en hann gat samt ekki sett á sig húfu af því að þá náttúrulega skemmist nýja hárgreiðslan ...þannig að af tvennu illu valdi hann frekar að vera kalt ...enda nýbúið að skella fullt af geli og spreyi í hausinn á honum, og hann alveg með smælið út á kinnar yfir nýju hárgreiðslunni. ...maður er nú ekki töffari fyrir ekki neitt!!

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hvurnig væri að fá mynd af herranum með nýju greiðsluna !

7:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

bjútí is pein, hann Óðinn hefur komist að þeirri leiðindar staðreynd núna.. !

7:43 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home