...hmmm

mánudagur, febrúar 19, 2007

Hér eru ég og silja að prófa nýju tölvuna hennar Silju! Hún er roooosalega sniðug, maður gjörsamlega orgar úr hlátri þegar maður er að prófa þessa myndavél sem er á tölvunni. ...þetta er svona "had to be there" ...maður fattar ekki hvað þetta er fyndið fyrr en maður prófar sjálfur.
...eeeen allavegana , við vorum að fikta eitthvað í þessu og við ætluðum ekki að geta hætt að hlæja þegar við fengum út þessa glæsilegu mynd hér að neðan. Við hlóum svo mikið meðan við vorum að bíða eftir að tölvan tæki myndina að það liggur við að tanngarðurinn sé að fara út úr mér eins og sést á myndinni. Brosið á Silju er öllu hógværara, lítur meira svona út eins og hún sé að reyna að vera geðveikt hress, en sé kvalin af einhverjum hræðilegum sjúkdómi í raun og veru. Við ákváðum að skýra þessa mynd "tvær vinkonur, geðveikt hressar, á leiðinni á djammið".

...hér erum við samt í alvörunni á djamminu ...hí hí :D Silja er svo frábær og ég er svo heppin að eiga svona ææææðislega mágkonu ...luv jú sæta ;)

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Þið eruð æðislegar báðar tvær ; )

11:30 f.h.  
Blogger Silja Rut said...

sömuleiðis elskan...ekki slæmt að eiga mágkonu sem er í leiðinni ein af bestu vinkonum:*

hahaha, sjitt hvað þetta er ógeðsleg mynd samt...sit í tölvuverinu í odda og hló alveg upphátt og uppskar undarleg augnaráð frá fólki í kring:)

1:09 e.h.  
Blogger Silja Rut said...

hahaha, ég get ekki hætt að hlæja þegar ég sé þetta...farðu nú að blogga nýtt svo þetta blasi ekki alltaf við manni þegar maður kíkir hérna inn!

11:52 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home