...hmmm

fimmtudagur, maí 03, 2007

ohh! Ég er svo stolt af sjálfri mér, ég hljóp 4.3 kílómetra áðan ...ég held að ég hafi bara aldrei í lífinu hlaupið svona langt áður (og nota bene, hlaupa ...ekki labba). Vegalengdin sem ég get hlaupið er alltaf að lengjast og ég er stöðugt að koma sjálfri mér á óvart ...love it!

Annars er bara eitt próf búið og fjögur eftir ...ég ætla ekki að gera ykkur það að fara að vera með einhver leiðindi núna!

Ég held að ég sé búin að vera of mikið með henni Silju minni núna undanfarið ...Silja fékk á einhvern ótrúlegan hátt mjaðmaverkina mína, sem læknar hafa enga skýringu fundið á ...og ég er reyndar búin að vera laus við í smá tíma. Fólk er farið að halda að við séum kærustur

...og Silja, án gríns, ég fékk alveg hrikalegan verk í kúluna á ökklanum núna þegar ég var að hlaupa (hef aldrei fengið svoleiðis áður), og eitthvað minnir mig að ég hafi heyrt þig segja það nákvæmlega sama í gær. Þetta er nú hætt að vera normal!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

harkan í þér kjélla mín.. 4.3 kílómetrar er ekkert smá.. ég kæmist ekki hálfa þessa vegalengd hlaupandi.. nema þá kanski með hest undir fótunum.. en það er víst ekki tekið með :) En flott blogg hjá þér og ég er stollt af þér bollan mín ;)vona að ég fari að taka þig til fyrirmyndra bráðum..
kv. Björk

8:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hahaha...þá geturu beðið spennt í nokkra daga þangað til beinhimnubólgan fer að gera vart við sig:)
silja

11:50 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

af hverju grunar mig að björk kæmist ekki 4,3 km þrátt fyrir a vera með hest undir sér, hún myndi nú bara klessa á hús eða eitthvað...
Varðandi þessa samúðarverki get ég því miður ekki sjúkdómsgreint þig en ef ég væri þú þá myndi ég tafarlaust panta tíma hjá Þorgrími Þráins, hann hefur allt á hreinu!

7:06 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home