...hmmm

laugardagur, maí 05, 2007

Prófin eru farin ad segja til sín, ég er farin ad taka alveg hrædilega heilalaus móment! Ég stökk á Silju í gær og bad hana um yddara ...ég meinti samt heftara, allavegana pínu líkt. Svo thegar ég kom heim í gærkvöldi, thá sló ég nú öll met. Ég hafdi keypt einhvern súkkuladi sojabúding til ad láta Urdi borda og Ari var ad segja mér ad hún vildi ekki sjá thennan súkkuladibúding! Thá segi ég, starandi heilalaus út í loftid: "vill hún samt ekki alveg melónudrykkinn?" ...Ari gaf mér mjög skrítinn svip, vitandi ad thad er vissulega ekki til neinn melónudrykkur heima hjá okkur, og hefur aldrei verid!
"eee ...Ester, ertu kannski ad meina vanillubúdinginn?"

...oj oj oj og ómægod! Hvernig slær saman í hausnum á manni ordunum melónudrykkur og vanillubúdingur? ...ég kannast ekki einusinni vid thad ad hafa keypt, drukkid eda átt melónusafa! Thad er varla ord einusinni!

thetta litla atvik nægdi nú samt til ad skemmta mér ærlega í gærkveldi, ég ætladi ekki ad geta hætt ad hlæja út af thessu ...er madur nú stúpid líka ofan á allt annad!

...og bara svo thid haldid ekki ad ég sé ordin alveg klikk, thá er thorn og ed bilad í tölvunni hjá mér!
Kvedja from da brainhouse!

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

haha, já maður verður vissulega klár af öllum þessum prófalestri.
eins og ég um daginn, þegar ég hélt á útprentaða ímeilinu á meðan ég opnaði launaumslagið mitt...varð svo alveg steinhissa yfir að ímeilið hafi komið með launaseðlinum.
steik.
við gætum safnað þessu í bók:)
kv.
Silja

10:49 f.h.  
Blogger Ester said...

...já, við erum alveg skemmtilega gáfaðar esskan :D

11:05 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hérna, þú mátt fá mitt: þþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþþ
svo er það bara ctrl+c og ctrl+v

9:09 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hahahahha... ég sprakk ! Melónusafi :D
kv. Björk

12:38 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home