...hmmm

föstudagur, nóvember 17, 2006



Hér koma umbeðnar hárgreiðslumyndir, þó það sé nú ekki búið að gera neina töffaragreiðslu í hann þarna ...bara svona venjulegt skóladagshár :D Annars eru Óðinn og Urður hérna að leika sér í dýnuhúsi sem við gerðum á ganginum hjá kattahliðinu. Nýjasta nýtt hjá Urði núna er að fara afturábak og troða rassinum í gegnum gatið fyrir köttinn, og svo situr hún þar föst ...og gerir þetta samt aftur og aftur og aftur. Sá sem fann upp máltækið "brennt barn forðast eldinn" hefur alveg örugglega ekki átt barn sjálfur!

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

já, ekki nema hans barn hafi í raun og veru brennt sig og máltækið eigi bara við slíkar aðstæður ??

9:23 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hann er rosalega flottur og mikill töffari, vonandi passa líka buxurnar, sem ég var að laga á hann :P

11:09 e.h.  
Blogger Ester said...

Mín börn hafa brennt sig ...og ég get fullyrt að þau forðast ekki eldinn ;) En það er samt alltaf sá möguleiki að gaurinn hafi bara átt alveg einstaklega skynsöm börn ...eða hræðslupúka, eftir því hvernig á það er litið :D

11:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

það er sama hversu oft ég dett af baki ég fer alltaf aftur, kannski er þetta ábending um gáfnafar okkar í fameliunni :)

11:06 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home