...hmmm

fimmtudagur, desember 21, 2006

jibbí jeiiii!!! Loksins er ég búin í prófunum! Ég var svo spennt að komast út úr prófinu að ég er ekki frá því að ég hafi flýtt mér aðeins. Ég fór svo að sækja Óðinn niður í reiknistofu (þurfti að vera í vinnunni með pabba sínum meðan ég var í prófinu), og það var vissulega stórkallalegt að sjá Óðinn labba út úr seðlabankanum með fartölvutöskuna á öxlinni, hann var svona eins og lítill viðskiptafræðingur ...hehe :D

Við fórum svo heim og skrifuðum jólakortin á ljóshraða ...svo fyrir þá sem fá kortið frá okkur seint, eða fá tómt umslag með nafninu sínu utaná, eða eitthvað annað nafn er inni í umslaginu en utaná því ...æm só sorrí :/ það er þó allavegana mynd af krökkunum með kortinu.

...nú er ég að jólastússast alveg á fullu ...baka og hafa það jolly ...allir velkomnir í kaffi :)

Jólakveðja: Ester

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

ég kem til þín í huganum kl. 15.00 í dag - jólakveðjur úr Borgarfirði :)

9:38 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir jólakortið elskan mín. Ég sendi ekki nein þetta árið.

Anna Kristjana...

2:16 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home