...hmmm

mánudagur, nóvember 27, 2006

Ekki nóg með það að ég eigi ömmu sem bakar bestu kleinur og bollur í heimi, heldur á ég líka ömmu sem er hraust, dugleg og tekur afstöðu. Ég sá mynd af ömmu minni á netinu í dag, þar sem hún var að taka þátt í leik. Þessi leikur heitir "yfir" og fólk á Hólmavík hópaðist saman til að spila hann yfir gamla barnaskólann á Hólmavík, til að mótmæla niðurrifi hans. Ég er hjartanlega sammála ömmu minni, sem og fleirum, í þessu máli, og er algjörlega á móti niðurrifinu. Amma mín er alveg yndisleg og ég er ótrúlega stolt af henni!! Greinin á netinu er hér og þeir sem vilja kynna sér umræðurnar, geta séð þær hér

4 Comments:

Blogger Ester said...

...og já, amma mín er þessi í rauðu úlpunni.

4:42 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Húrra fyrir ömmu Heiðu!!!

8:00 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hún er amma mín líka.. :D og ég væri ekkert á móti því að verða eins og hún þegar ég fer að nálgast 70 ára..
en amma heiða er alveg æðisleg ;*

8:30 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

já það má segja að amma okkar Heiða sé OFUR AMMA, vona að ég verði eins og hún, Alvöru Amma

9:08 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home