...hmmm

föstudagur, mars 16, 2007


Ég hef mjög gaman af Desperate Housewifes, og ekki síst þar sem ég er ein slík sjálf (og skammast mín ekkert fyrir það).


Hér eru mínar Desperate Housewifes, eða að minnstakosti nokkrar þeirra! Ég vona að þessi mynd eigi ekki eftir að valda neinum vinslitum. Ég hefði að minnsta kosti aldrei þorað að setja hana móður mína þarna nema vegna þess að hún er stödd erlendis næstu tvær vikurnar og fer væntanlega ekki í tölvu á meðan (ekki segja henni, svona langlínusamtöl eru nefnilega svo dýr) ...ég verð bara að vona að hún sé ekki jafn hefnigjörn og hin rauðhærða Bree.

Ef einhverjir eru að velta því fyrir sér hverjar þetta eru, þá eru frá vinstri: Lísa ofurmamma, Didda ofurmamma, svo hún ég, móðir mín, og Silja mágkona. Ætti ég að fá mér svona permanett ...haaa? ...eða mamma að safna hári?
...veit samt ekki alveg afhverju ég hef tíma núna í að vera að búa til einhverjar myndir í photoshop, eitthvað voðalegt kæruleysi í gangi held ég...

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

He he ég vona að ég eigi ekki fleira sameiginlegt með "Edie Britt" annað en ljósa hárið;) Ættir annars að sækja um vinnu hjá tímariti... Allar forsíður photoshoppaðar til helv...í dag Sýnist þú bara nokkuð sleip í þessu

Kveðja Lísa Britt

5:48 e.h.  
Blogger Silja Rut said...

HAHAHA!
djöfull erum við miklu flottari:)

12:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Photoshoppa segirðu, eitthvað minnir mig að ég hafi séð ansi skemmtilega mynd hjá þér í gær af okkur Ólafsson hjónunum.

Hvort hún var photoshoppuð eður ei er ekki gott að segja, uuummm???

Það væri gaman að láta fólk giska á það, eða er það þorandi?

Kv. Sívert

6:04 e.h.  
Blogger Ester said...

ég held að myndir af ykkur fríðleikshjónum ættu að hljóta sem minnsta opinbera birtingu ...ekki viljum við að blöðin komist í þetta!

1:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

buin ad sja tetta tad eru tolvur a tenerife

3:28 e.h.  
Blogger Ester said...

o óóóóó!

7:14 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hehehheehehehe snilldarmynd ;)
Kv.Birgitta

10:46 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

ef Gyða sól væri í aðþrengdum eiginkonum að þá hefðirðu kannski ekki gleymt mér eða hvað??????????
Heidí Sól

6:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home